Heilsa óháð holdafari
Heilsa óháð holdafari (Health at Every Size) er ný nálgun að heilbrigði sem hafnar þeirri hugmynd að grannur vöxtur sé forsenda heilsu og hamingju. Í stað þess er lögð áhersla á:
• Að bæta heilsu
- áhersla á tilfinningalega, líkamlega og andlega velferð án áherslu á þyngd eða þyngdartap.
• Að bæta sjálfs- og líkamsmynd
- að bera virðingu fyrir dásamlegum fjölbreytileika líkamsvaxtar í stað þess að keppa að hinni „réttu“ þyngd eða líkamslögun.
• Að njóta þess að borða
- að borða samkvæmt innri merkjum hungurs og saðningar í stað þess að fylgja utanaðkomandi reglum, boðum og bönnum.
• Að njóta þess að hreyfa líkamann
- að stunda reglulega og ánægjulega hreyfingu sem eykur lífsþrótt, hreysti og vellíðan í stað þess að hreyfa sig fyrst og fremst í þeim tilgangi að grennast.
• Að sporna gegn fitufordómum
- að gera sér grein fyrir því að líkamsstærð og þyngd segja ekki til um matarvenjur, hreyfingu, persónuleika eða mannkosti fólks. Fegurð og manngildi koma fyrir í öllum stærðum og gerðum.
No comments:
Post a Comment